Starfsfólkið kom frá námskeiðinu fullt eldmóði og með dýpri skilning á mikilvægi gæða í þjónustu og sölu. Námskeiðið var sérsniðið að okkar þörfum og skilaði sér í markvissum aðgerðum og aukinni meðvitund í starfi.
Gunnar Andri fór langt fram úr væntingum – hann mætti á staðinn, kynnti sér starfsemi okkar og tengdi efnið við okkar daglegu áskoranir. Þjónustan var framúrskarandi, útkoman öflug, og við fengum hugmyndir sem nýtast strax í samskiptum við viðskiptavini.
Fyrirtæki sem vilja efla þjónustu og samskipti ættu hiklaust að kynna sér hugmyndafræði Gunnars Andra.
Við erum innilega þakklát fyrir frábært námskeið og einstaklega faglega nálgun.
– Rósalind Guðmundsdóttir,
Framkvæmdastjóri Vélsmiðju Guðmundar