ÁRANGURSRÍK SÍMASALA

Þjálfunarnámskeið: Efldu söluþekkingu þína og samskiptahæfni í gegnum síma

Velkomin á sérhæft námskeið þar sem þátttakendur fá tækifæri til að þróa eigin færni og verða sjálfsöruggari í símasamskiptum. Þetta er ekki aðeins fræðsla heldur einnig verkleg reynsla, þar sem þú munt taka virkan þátt í öllum þáttum námskeiðsins.

Lengd námskeiðs: 3-4 klst.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á eftirfarandi lykilatriði:

  • Sterk fyrstu kynni við viðskiptavininn: Hvernig á að koma sér vel fyrir strax í upphafi samskipta.
  • Myndun trausts: Aðferðir til að byggja upp og viðhalda trausti við viðskiptavini.
  • Bókun funda og kynninga: Árangursrík nálgun við að tryggja jákvæðar niðurstöður.
  • Samtalsstjórnun: Leiðir til að halda stjórn á samtali í gegnum síma og ná tilætluðum árangri.
  • Ákvarðanatökuferli viðskiptavina: Hvernig á að leiða viðskiptavininn á öruggan hátt til réttrar ákvörðunar.
  • Spurningatækni: Listin að spyrja réttu spurninganna til að fá upplýsingar og skilning.
  • Virk hlustun: Aðferðir til að hlusta virkilega á viðskiptavininn og skilja þarfir hans.
  • Árangursríkar starfsvenjur: Hagnýtar leiðir til að bæta eigin vinnubrögð.
  • Umbreyting neikvæðra viðhorfa: Hvernig á að snúa neikvæðum viðskiptavinum yfir í ánægða viðskiptavini.
  • Ánægður viðskiptavinur – besta auglýsingin: Hvernig ánægðir viðskiptavinir verða að traustri markaðssetningu.
  • …og margt fleira sem mun gera þig að færari söluaðila!

 

Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa í sölu í gegnum síma, hvort sem það snýst um innhringingar eða úthringingar í tengslum við sölu á vöru, þjónustu eða hugmyndum.

Frekari upplýsingar og skráning:
Sími 615 1881 eða 615 1771

The Vikings philosophy
for conquering the
Challenges of Business
and Life

The Vikings philosophy
for conquering the
Challenges of Business
and Life

  

SKRÁÐU ÞIG OG FÁÐU FYRSTA KAFLANN FRÍTT:

MESSAGE FROM THE MIDDLE OF NOWHERE
The Vikings philosophy for conquering the Challenges of Business and Life
SKRÁ MIG