Stórsölumaðurinn
Námskeið fyrir lengra komna
Stórsölumaðurinn er loka námskeiðið SGA og byggir á grunninum sem lagður er í Gæðasölu og Listinni að ljúka sölu.
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja fara frá því að vera góðir sölumenn yfir í að verða framúrskarandi. Hér er ekki aðeins unnið með sölutækni heldur það sem skilur að meðalárangur og stór árangur: viðhorf, venjur, hugarfar og væntingar.
Á námskeiðinu er farið djúpt í það hvernig stórsölu fólk hugsar, bregst við áskorunum og byggir upp þann innri styrk sem þarf til að ná árangri aftur og aftur – jafnvel þegar á móti blæs.
Meðal þess sem fjallað er um:
- Hvernig stórsölu fólk hugsar um sjálft sig, viðskiptavini sína og framtíðina.
- Viðhorf og venjur sem einkenna afburðaárangur í sölu.
- Jákvæðni og bjartsýni sem fagleg verkfæri en ekki tilviljunarkenndir eiginleikar.
- Útskýringar Stíla sölumannsins gagnvart sjálfum sér og öðrum.
- Hvernig hugsanir okkar móta árangur til skamms og langs tíma.
- Áhrif meðbyrs og mótbyrs á frammistöðu og árangur.
- Hvernig mismunandi svið lífsins geta styrkt eða veikt okkur í starfi.
- Aðferðir til að byggja upp seiglu, sjálfstraust og árangursmiðað hugarfar.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er sérstaklega hannað fyrir þá sem hafa lokið námskeiðunum Gæðasala og Listin að ljúka sölu og vilja ná næsta stigi í sölu og þjónustu.
Markmið námskeiðsins
Að hjálpa þátttakendum að þróa það hugarfar og þær venjur sem einkenna bestu sölumennina. Þegar sölutæknin er komin á sinn stað verður hugarfarið oft sá þáttur sem ræður úrslitum um hvort einstaklingur verður góður sölumaður eða stórsölumaður.
Stórsölumaðurinn snýst því ekki um að selja meira í dag. Hann snýst um að verða sá einstaklingur sem getur selt meira á hverjum degi til framtíðar.
Af hverju þetta virkar?
Flest sölunámskeið kenna hvað á að gera. Færri kenna hvernig á að hugsa þegar hlutirnir ganga ekki samkvæmt áætlun.
Reynslan sýnir að munurinn á meðal árangri og framúrskarandi árangri liggur sjaldnast í vörunni, verðinu eða sölukerfinu. Munurinn liggur oftar í viðhorfum, væntingum og þeirri innri rödd sem fylgir sölumanninum í gegnum hvern einasta vinnudag.
Stórsölumaðurinn er námskeið fyrir þá sem vilja byggja árangur sem endist.
